Í pakkanum eru 200 hvítar blöðrur í mismuandi stærðum sem auðvelt er að setja saman. Ekki þarf Helíum í þessar blöðrur, þær eru fylltar með lofti og festar á sérstakt blöðruband sem fylgir með. Þegar allar blöðrurnar eru komnar á bandið er blöðruboginn tilbúin.
Tilvalin til að skreyta sal í stærri veislum, til dæmis yfir veisluborði eða pakkaborði.. en einnig flottur við smærri tilefni eins og barnaafmæli eða babyshower.
Leiðbeiningar fylgja en einnig er hægt að skoða myndbandið hér á síðunni.
Við mælum með því að kaupa einnig blöðrupumpu til að auðvelda samsetningu.